Það er hægt að nota þennan Web Page Analyzer til að skoða hversu þung einhver vefsíða er og það verkfræi gefur einnig ýmsar aðrar upplýsingar um vefsíðuna. Mikilvægt er að vefsíður séu ekki of þungar í hleðslu, helst ekki meira en 100 k. Oft eru vefsíður lengi að hlaðast inn vegna þess að svo margar myndir eru á vefsíðum eða að myndir eru ekki unnar sérstaklega fyrir vefinn.
Skoðaðu t.d. hve leitarsíðuna google.com, hún er bara 11248 bytes (11 k) á meðan forsíða á khi.is er núna 151084 bytes (151 k). Passaðu vel að vefsíður sem þú gerir séu ekki of þungar fyrir notendur með hægvirkar nettengingar. Prófaðu að sjá hve þungar þær vefsíður sem þú notar mest eru.
Recent Comments