Hvernig nýtist blogg í námi og kennslu?
Um annálaskrifara nútímans
Annálar voru ekki eingöngu skrifaðir á Íslandi 1400-1800, það er núna kominn blómatími nýrrar tegundar af annálum - nú er auðvelt að búa sér til annál á vefnum og skrá í tímaröð hvað sem manni dettur í hug. Ekki eingöngu texta, það má líka hafa tal, myndir og vídeó. Þetta er miklu, miklu einfaldara en gera vefsíður eða setja upp umræðulista og hver sem er getur sett upp sinn eigin annál og byrjað að birta heimsbyggðinni skrif sín.
Skrifin koma í tímaröð - það nýjasta efst. Þannig eru líka annálarnir eins konar fréttamiðlar, geta verið ópersónuleg fréttabréf eða innilegar dagbækur sem lýsa dýpstu þrám og tilfinningum. Mér finnst hérna komið alveg úrvalsverkfæri til ýmis konar ferilsvinnu - verkefna sem standa yfir langan tíma og þróast smám saman. Núna hefur kviknað mikill áhugi skólamanna víða um heim á svona. Í námi nútímans leggjum við áherslu á að nemandinn byggi upp eigin þekkingu og sé meðvitaður um sína þekkingar- og skilningsleit. Ég held að annálar af þessum toga séu ágætt verkfæri til þess að skrá svona feril einhvers konar náms - líka persónulega þroskasögu. Það er hægt að nota svona dagbækur á vefnum á ýmsa vegu, breyta ásýnd hennar svo hún passi viðkomandi og skrifa í hana hvenær sem manni dettur í hug. Kannski nokkrum sinnum á dag, kannski líða einhverjar vikur á milli. Vefannálar eru ný ritunaraðferð - það er eins og hægt sé að vera frjálsari og innilegri og láta allt vaða (alltaf hægt að breyta seinna), setja fram hugmyndir sem eru að kvikna og seinna verður unnið úr. Margir nota annála til að skrifa dagbækur á Netinu. Þessar dagbækur eru oft mjög persónulegar og andstæða við fréttabréf.
Blogg - annálar - viðburðaskrár - dagbækur - fréttabréf
blogg eða annálar eða viðburðaskrár á vefnum (web logs) eru eins konar dagbækur þar sem eigendurnir geta skráð inn og birt stuttar greinar og úrdrætti, hugmyndir og hugsanir og ýmis konar upplýsingabúta án þess að þurfa að fara og uppfæra vefsíður á hverjum degi. Flestir annálar á vefnum eru eingöngu innlegg frá einum aðila, eigandi annálsins er pistlahöfundur sem hefur sérstakt lykilorð sem gerir honum kleift að slá inn pistla gegnum vefinn. Hann getur þannig hvar sem hann er staddur í heiminum farið á vefinn og bætt í dagbókina sína. Ef aðrir hafa notendanafn og lykilorð geta þeir líka bætt í dagbókina, þannig er hægt að nota svona annála við ýmis konar ferilskráningu, viðburðaskrár, fréttamiðlun og hópvinnu þar sem framlögin koma í tímaröð og við viljum að það nýjasta sé efst.
Það er miklu einfaldara að halda úti vefannál en umræðulista á vef því að er enginn strúktúr nema tímaröð - innleggin eru í tímaröð og það nýjasta efst. Það er líka miklu einfaldara að gera vefannála en vefsíður og auðvelt að bæta við þá - ekki þarf neitt að spá í ftp forrit og breytingar á vefsíðum.
Það getur verið sniðugt að tengja annála við vefsíður. Reyndar eru forsíðurnar á mörgum vefsvæðum núna nokkurs konar blogg eða fréttasíður.
Recent Comments