Kæru nemendur,
núna í 5. lotu sem stendur til 15. nóvember þá er áherslan á að kynnast ýmis konar vefverkfærum og samvinnukerfum og þið prófð bara það sem þið viljið af því sem ég bendi ykkur á... en haldið utan um það á skilasíðunni ykkar... gerið þá grein fyrir hvað þið hafið prófað og kynnt ykkur.
Fyrsta sem ég ætla að kynna ykkur er Talblogg. Ég er búin að tengja talblogg við kennarabloggið, sjá t.d. þetta dæmi: http://asta.typepad.com/skolastarf/2003/11/talblogg.html
Prófið að smella á kassann til að spila talbloggið.
Er þetta kannski sniðugt til að nota í skólastarfi... sérstaklega í fjarnámi?
Þetta er ansi hreint einfalt, ég var bara korter að setja upp talbloggið mitt og ég held að það sé frítt til áramóta og hver sem er getur sett upp sitt eigin talblogg á www.gsmblogg.is Ég þurfti bara að gefa upp hvaða gsm síma ég ætlaði að tala úr, hvaða slóð væri á bloggið mitt, hvað væri notendanafnið og hvað væri lykilorðið. Þá var búið til fyrir mig talblogg. Nú þarf ég bara að hringja í ákveðið símanúmer, segja eitthvað í símann, smella á ferninginn þegar ég búin og BINGO! talbloggið er komið á vefinn. Þetta gæti ekki verið auðveldara. Kannski er hér komið verkfæri fyrir rafræna minnisbók?
Hver sem er getur prófað þetta... en prófið endilega að spila svona talblogg og hugleiða hvernig við getum notað svona verkfæri í námi og kennslu. Þetta er svo nýtt verkfæri að við höfum að ég held engin dæmi erlendis um þetta ... mér sýnist svona verkfæri geta gert einfaldara fyrir okkur að nota hljóð... og við erum fljótari að tala en skrifa. Ég fór að hugsa um að ef þið öll hefðuð talblogg þá gæti ég beðið ykkur að skila svoleiðis. Gefa mér stutta skýrslu sem þig segðuð í símann um hvernig gengur. Í tungumálum hlýtur þetta að vera mjög sniðugt
Recent Comments