Komið þið sæl,
Vil minna ykkur á að núna um mánaðarmótin 1. október eru næstu skil (föstudaginn á eftir hjá staðbundna náminu). Það eru vefleiðangur, tæknisaga og fyrstu drög að persónulegum vef. Í þessu námskeiði á hver að gera einn vefleiðangur um sjálfvalið efni.
Það á líka að skrifa tæknisögu (sjá leiðbeiningar http://www.asta.is/skolastarf/taeknisaga.htm )
Uppkasti af þessu á að skila núna á blogger dagbók. Athugið að það nægir að það sé uppkast núna þannig að endilega skrifið það í blogger dagbókina. Svo bið ég ykkur líka að skrifa hugmynd um hvað þið viljið setja sem persónulegan vef þ.e. hvað þið viljið bæta við vef sem þið eruð sennilega flest byrjuð með.
Þið hafið frjálsar hendur um hvað þið viljið bæta við að öðru leyti en því að að persónulegur vefur verður að innihalda tvennt af þessum fjórum atriðum:
* Starfsferilsskrá (CV) (svona síða með ljósmynd sem segir hvað þið hafið unnið við, gott fyrir atvinnuumsóknir og ýmis konar umsóknir t.d. um styrki/skóla)
* Upplýsingasíða á ensku (síða á ensku með upplýsingum um ykkur, gott þegar maður tekur þátt í erlendu samstarfsverkefni)
* Myndaalbúm með skýringum (setja upp myndaalbúm með einhverjum myndum og skýringum í Frontpage
* Kennsluvefsíða. Dæmi um kennsluefni á vef (setja upp fræðandi texta með mynd í Frontpage)
Fyrir mánaðarmótin núna er bara að skrifa inn hugmynd í blogger.
Recent Comments