« Íslendingar nota Netið manna mest | Main | Teikniforrit »

september 10, 2003

Comments

Sara Dögg

hæhæ!
ég var að spá hversu nákvæmt þetta fyrsta uppkast af vefrally ætti að vera á blogginu. eigum við að koma með spurningar líka eða er nóg að segja frá hugmyndinni?
kveðja, sara

Salvör

Hæ Sara,
Hafðu bæði hugmyndina, vefslóð og einhverjar spurningar. Þú getur svo bætt við það seinna eða breytt

hæhæ Salvör ég er með 2 spurningar sem mig vantar svör við.
Fyrsta sem ég var að velta fyrir mér í vefrallýinu, er þá ætlast til þess að það sé bara svarað fullt af spurningu frá einum vef? Ég var nefnilega búin að gera marga vefi og margar spurningar, ég þarf að breyta því og velja bara einn af vefunum mínum og gera fleiri spurningar út frá honum er það ekki ??

Síðan var ég að hugsa í sambandi við powerpoint verkefnið, aðalatriðið er að geta gert glærur og sett inn hljóð og mynd rétt en ekki hvernig fyrirlesarinn er, ég var eitthvað að taka upp áðan og fannst ég koma eitthvað asnalega út, en það skiptir engu máli er það nokkuð? þú ert ekkert að fara að skoða fyrirlesturinn sem fyrirlestur heldur hvort við kunnum eitthvað á tölvuna, er það ekki?

Kveðja Hulda

Salvör

Hulda,
það er bara að nota kerfið og búa til einhvers konar margmiðlunarefni sem við erum að spá í. Við erum ekkert að spá hvernig fyrirlesari kemur fyrir.

The comments to this entry are closed.