Að safna og nota og uppbreyta gögnum - í anda hugsmíðahyggju og lausnaleitanáms
http://www.asta.is/skolastarf/vefleidangur.htm
Vefleiðangrasafn FB
http://ut.fb.is/links
Við höfum áður farið í verkefni fyrir nemendur sem tengjast því að þeir eiga að safna saman ýmsum upplýsingum á Netinu. Svoleiðis verkefni eru t.d. vefrallý. Við viljum hins vegar oft búa til verkefni sem ganga lengra en aðeins að safna saman gögnum - við viljum að nemendur vinni að verkefnum þar sem þeir viða að sér nýrri þekkingu og nota hana til að búa til eitthvað, skapa eitthvað eða leysa vandamál. Við erum ekki að leita eftir því að nemendur geti tileinkað sér þekkingaratriði til að geta þulið þau upp heldur að reyna að þjálfa nemandann í bæði að safna og nota upplýsingar við eitthvað verðugt viðfangsefni.
Hér er aðalatriðið að það sé eitthvað verkefni, eitthvað vandamál sem þarf að leysa. Það er líka kjarninn í lausnaleitanámi. og í anda hugsmíðahyggju. . Við búum til vefleiðangur þar sem fókusinn er á verkefnið - hvað á að koma út úr vinnu nemenda - hvernig eiga þeir að nota það sem þeir hafa lært.
Vefleiðangur er staðlað form af verkefnum þar sem við byrjum á segja hvert viðfangsefnið , hvað á að koma út úr verkefninu og í hvaða hlutverki nemandinn er. Við komum með tillögu um vinnulag (ferli) og gefum upp vefslóðir þar sem nemandinn á að leita fyrir sér og segjum honum hvernig verkefnið verður tekið út.
Nýlegir vefleiðangrar:
Fréttamiðlar á vefnum
http://www.ismennt.is/not/audh/vefleidangur1.htm
ESB
http://www.simnet.is/rafnk/baldur/evropa_vefur/forsida.htm
Vor við Seyðisfjörð
http://www.ismennt.is/not/bmj/vorleidangur.htm
Þjóðsögur
http://www.ismennt.is/not/baa/thodsogur1.htm
Vefleiðangur um Danmörku
http://www.ismennt.is/not/stina/vefleidangur.htm
Handgerður pappír
http://www.ismennt.is/not/gjon/webquest/wqpappirsgerd.htm
Námsvefur um handgerðan pappír
http://www.ismennt.is/not/gjon/pappirsvefur/index.html
Hæ Hæ
Ég var að skoða vefleiðangra hér fyrir ofan. Var sjálf búin að útbúa á heimasíðu með fullt af síðum fyrir leiðangurinn, en langar að breyta því og hafa þetta á einni síðu og setja link(a) sem hleypur niður á fyrirsögn í þeim kafla sem maður velur. Spurningin er hvernig fer ég að því, er einhver hér sem vill fræða mig á því.
Bestu kveðjur Úlfhildur
Posted by: Úlfhildur | september 25, 2003 at 12:31 PM
Úlfhildur,
svoleiðis linkar koma sjálfkrafa ef þú ferð eftir leiðbeiningunum um hvernig þú vistar tilbúin vefleiðangursform.
til að gera linka í eigin síður þá velur þú insert link en hakar við að það sé innan síðua.
Posted by: Salvör | september 26, 2003 at 03:50 PM