Ég man að í staðbundnu lotunni þá kom fram að nokkrir á þessu námskeiði eru leikskólakennarar. Mér langar til að segja ykkur frá að nú hefur íslenskt verkefni Vísindavefur leikskólans Iðavallar, Það er leikur að læra, er kominn í úrslit eSchola verðlaunasamkeppninnar. Hann er meðal 10 verkefna sem hafa verið valin af u.þ.b. 600 sem bárust í keppnina.
Ég var kennari á fyrsta námskeiðinu sem haldið var fyrir nemendur á leikskólabraut 1999.
Tölvur í leikskólanum 1999
Það er heilmikið að gerast hjá sumum leikskólum varðandi tölvunotkun. Hér má sjá hvað leikskólinn Funaborg er að gera.
Það er frábært að tölvur skuli vera komnar á marga Leikskóla og notaðar í skólastarfi þar.
Í mínum leikskóla Tjarnarborg er ein tölva í boði fyrir börnin til notkunnar. Við erum núna að prófa okkur áfram með tvö forrit Glóa geimveru og Kid pix sem er teikniforrit. Tölvan er í boði fyrir börnin í vali og er hún mjög vinsæl og reynist með því vinsælasta sem í boði er. Hugmynd okkar á leikskólanum er að þróa tölvuvinnuna enn meir, og fá nettengingu inní skólastofuna þannig að við getum unnið fjölbreyttari verkefni.
Posted by: Gréta | september 23, 2003 at 02:09 PM
Frábær að heyra Gréta hvað þið eruð að gera.
Posted by: Salvör | september 23, 2003 at 08:27 PM