Ýmsir netleikir hafa færst mikið í vöxt og mikil aðsókn að leikjamótum. Næsta leikjamót SMELLUR 4 verður í Laugardagshöllinni í september.
Það færist í vöxt að spila ýmsa litla leiki á Netinu, algengir eru leikir sem nota Flash spilara. Svoleiðis spilara er hægt að hlaða ókeypis niður. Dæmi um slíka leiki eru á síðunni Orisinal og einnig á Miniclips.com og þar er m.a. boðið upp á að hlaða niður ýmsum leikjum til að setja á eigin vefsíður en örlitla kunnáttu í html þarf þó til þess. Ég prófaði að hlaða niður gamaldags Pacman leik.
Það eru margir sem hafa gaman af að taka ýmis konar próf á Netinu "hvers konar persónuleiki ert þú..." og slíkt. Ef þig langar til að búa til svoleiðis próf og setja inn þínar eigin spurningar, þá bendi ég á Quizilla.
Hér er vefur sem býður upp á ýmis konar púsluspil. JigZone
Netið er líka notað til að dreifa leikjum sem hægt er að hlaða leikjum Dæmi um síðu þar sem maður getur sótt leiki er PC games download.
Eve On-line er leikur sem hefur verið framleiddur af íslensku fyrirtæki CCP og kom nýlega á markað.
Nokkur dæmi um litla netleiki
Orisinal Mjög fallegir litlir flash-leikir
Biz Wiz Gefa til baka í búð og passa sig á þjófunum
Mutant Afskræma andlit..siðlaus...
Neighbours from Hell Raunveruleikasjónvarp á vefnum.. gengur úr trylla nágrannanna... siðlaust líka
Xtreme Skateboard brettaleikur
Orðamaskína
Nokkrir Java leikir (lemmings o.fl.)
Comments