Það eru til ýmis verkfæri til að vinna myndir til að nota á vefsíðum. Til dæmis eru Photoshop og Fireworks MX og Gimp og Paintshop Pro ágæt verkfæri. Gimp er "open source" teikniforrit. Það er líka hægt að fá á Netinu "open source" teikniforrit fyrir krakka, t.d. TUX Paint
Flest af þessum forritum er hægt að hlaða niður af Netinu og eru þau ókeypis í 30 daga. Þá renna þau út.
Paintshop pro kostar um $99 er á http://www.jasc.com/
Jalbum - ókeypis forrit til að búa til myndaalbúm á Netinu
Halló
Var að skoða Tux paint, rosalega sniðgt forrit og auðvitað góður kostur að það er hægt að sækja ókeypis á netið.
Krakkarnir mínir 11, 8 og tæpl. 3ára voru öll mjög hrifin af þessu og gleymdu sér alveg við að skapa myndir í þessu forriti.
Mæli með að þið sækið ykkur þetta forrit á netið.
Kv. Úlfhildur
Posted by: Ulfhildur | október 08, 2003 at 02:46 PM