Þessi frétt var í Mogganum í dag:
Netnotendur eru hlutfallslega flestir á Íslandi að því er kemur fram í frétt breska blaðsins Daily Record. Ísland, Svíþjóð og Danmörk eru í þremur efstu sætunum en þar á eftir koma Hollendingar, Hong Kong-búar og Norðmenn.
Forysta Íslands á þessu sviði er raunar nokkuð afgerandi ef marka má tölur Daily Record: 787 af hverjum þúsund íbúum Íslands nota Netið reglulega en í Svíþjóð eru netverjarnir 678 á hverja þúsund íbúa og 627 í Danmörku. Bandaríkjamenn eru í 7. sæti og Bretar í því 8. en í þessum löndum nota um 570-590 af hverjum þúsund íbúum Netið reglulega.
Comments