Vil benda öllum á að ég hef sett upp tímaáætlun fyrir námskeiðið undir FERLI á vefsíðunni.
Það átti bara að vera komin vel á stað með blogger 1. september, ég hef leiðrétt það sem stóð á vefnum.
Næstu verkefnaskil eru 15. september.
Næstu skrefin eru að skoða einfalda gerð af nemendaverkefnum VEFRALLÝ. Þetta er ágæt æfing í að búa til vefverkefni fyrir nemendur. Skoðaðu um vefsíðuna um vefrallý og prófaðu sjálf(ur) að fara í gegnum eitthvað vefrallý. Skrifaðu eigin vefrallý verkefni í blogger. (þú setur það svo seinna upp sem vefsíðu.
Skoðaðu vefsíðuna um margmiðlun og fjarkennslu með Powerpoint. Skrifaðu inn í blogger eigin hugmynd um kennsluefni í Powerpoint (5 til 25 glærur) um sjálfvalið efni en þannig að það henti til fjarkennslu þar sem fyrirlesari myndi segja eitthvað með hverri glæru.
Athugaðu að þetta á bara að vera hugmynd (hugmyndin má alveg breytast) og fyrstu vinnupunktar.
Recent Comments