Hilmar Hafsteinsson bendir á þetta ágæta námsefni. Ég hef skoðað það og líst vel á. Eruð þið til í að skoða líka og skrifa athugasemdir hér eða skrifa Hilmari í bloggið hans.
Bréfið frá Hilmari er svona:
Mig langar til að biðja þig um aðstoð. Undanfarna mánuði hef ég verið í póstsambandi við Mark Tullis, VP Business Development hjá Learning.com. Í kjölfarið var ég að fá 90 daga trial á öllu námsefni learning.com í upplýsingatækni/tölvufræði fyrir K1 - K12. Ég er byrjaður að prófa námsefnið í Digranesskóla og nemendur hafa verið mjög ánægðir. Þeir hafa átt auðvelt með að tileinka sér námsefnið og þurfa óverulega aðstoð.
Ég er búinn að stofna aðgang fyrir nemendur í upplýsingatækni við KHÍ til að prófa þetta námsefni. Username er KHI03 og Password er kynning. Ég setti inn allt námsefni fyrir K8, en mikilvægt er að átta sig á að learning.com býður uppá mjög ítarlegt og gott námsefni fyrir alla flóruna, þ.e. 1. - 10. bekk grunnskóla.
Mig langar til að biðja þig að kynna þetta námsefni fyrir nemendum í staðarnámi og fjarnámi, svo og að fá feedback frá þér og öðrum kennurum í upplýsingatækni/tölvufræði við KHÍ á þetta námsefni.
Endilega bregðist við þessu! Hér er um áhugavert námsefni að ræða.
Ég var að skoða learning.com, mér líst mjög vel á þetta námsefni og held að eina sem hægt sé að setja út á sé tungumálið, en það ætti ekki að vera stórt vandamál því krakkar í dag virðast flestir vera nokkuð góðir í ensku.
Það ætti alla vega að vera hægt að nota þetta í eldri bekkjum grunnskóla. Það besta væri nú samt ef einhver tækji að sér að þýða þetta á íslensku fyrir íslenska skóla.
Bestu kveðjur Úlfhildur
Posted by: Úlfhildur | september 23, 2003 at 10:42 PM
Það er mín reynsla að nemendur í 5. - 10. bekk geta auðveldlega unnið verkefnin. Ég hef stofnað séraðgang fyrir hvern einstakan nemanda í þessum bekkjum til að halda nákvæmlega utan um getu þeirra. Það er mikilvægt að árétta að námsvefurinn er líka mjög öflug upplýsingaveita fyrir nemendur um getustig nemenda. Ég get t.a.m. séð nákvæmlega hvenær hver einstakur nemandi hefur unnið verkefni, hve langan tíma það tók hann og hvaða einkunn hann hlaut. Þá get ég líka séð meðaleinkunn bekkjarins út úr hverju verkefni. Ég hef svo einfaldlega stofnað bekkjaraðgang fyrir nemendur 1. - 4. bekkjar. Þá byrja ég á að fara í gegnum verkefnið á töflunni, með aðstoð skjávarpans. Eftir að hafa útskýrt hvað um er að vera hafa nemendur leikið sér í verkefninu.
Bestu kveðjur, hilmar...
Posted by: | september 23, 2003 at 11:07 PM
frábær vefur og augljóslega miklir möguleikar á að nýta í kennslu. Um að gera að nýta það sem til er ef það virkar vel og nær þeim markmiðum sem ætlast er til.
Frábært. Geta skólar þá orðið áskrifendur, eða hvernig er það?
Posted by: Hulda | september 24, 2003 at 01:34 PM
Íslenskir skólar geta hæglega orðið áskrifendur. Árgjald pr. nemanda er ca. $8, þ.e. u.þ.b. 650 - 700 kr. Það er heppilegt að íslenskir skólar taki sig saman um áskrift til að lækka árgjaldið enn frekar. Learning.com býður okkur upp á tvo möguleika varðandi þýðingu á efninu. Annars vegar er tiltölulega einfalt að lesa inn íslenskar leiðbeiningar, sem kæmu þá í stað þeirra ensku. Hins vegar er flóknara mál, en gerlegt, að íslenska/staðfæra ritaðan texta. Fyrirtækið er opið fyrir þeim möguleika að ráðast í íslenskun á efninu, en þá yrði að koma til fjárhagslegur stuðningur frá menntamálaráðuneytinu eða íslenskum fyrirtækjum sem vilja styðja verkefnið.
Posted by: Hilmar | september 24, 2003 at 09:36 PM
Ég var að kíkja á þenna vef, learning.com og mér finnst hann alveg frábær. Nemendurnir sem nota þetta þurfa auðvitað að vera ágæt í ensku en ég held að þetta geti verið mjög sniðugt, ég alla vegna gleymdi mér alveg á þessari síðu.
Posted by: Margrét | september 26, 2003 at 05:36 PM
Þakka þér fyrir Margrét. Þetta er nákvæmlega mín tilfinning og þess vegna finnst mér mikilvægt að vekja athygli nemenda og kennara í upplýsingatækni við KHÍ á þessum vef. Það merkilega er að enskan stendur lítið sem ekkert í nemendum (5. - 10. bekkur). Ég var t.a.m. með nemendur í 9. bekk (vali) í verkefnavinnu í morgun og þau báðu mig um að fá að vinna fleiri verkefni í tímanum ;-)
Posted by: Hilmar | september 26, 2003 at 06:41 PM
Sæl verið þið.
Ég var að skoða learning.com.
Þetta er mjög skemmtilegt efni og ég var allt í einu komin á kaf í verkefni. Sammála þeim sem á undan hafa skrifað. Enskan er flöskuháls en þarf ekki að vera það í eldri bekkjum eins og Hilmar bendir á.
Kveðja,
Gréta
Posted by: Gréta | september 28, 2003 at 09:37 PM
Sæl Salvör,
er að vinna í frontpage en hvernig get ég sett það út á vefinn?
kveðja Inga
Posted by: Inga | október 03, 2003 at 11:45 AM
Mjög sniðugt námsefni. Einfalt svo enskan ætti ekki að vera vandamál.
Posted by: inga | október 06, 2003 at 12:37 PM
Mjög sniðugt námsefni. Einfalt svo enskan ætti ekki að vera vandamál.
Posted by: inga | október 06, 2003 at 12:37 PM
Sæl Inga og þakkir fyrir innleggið. Það er einmitt rétt sem þú segir að enskan er í raun ekki vandamál. Ég er t.a.m. búinn að leggja 3 verkefni fyrir 5. bekk í Digranesskóla með hálfs mánaðar millibili. Meðaleinkunnin var 8,8 á fyrsta verkefninu, 9,3 á öðru og 9,7 á því þriðja ;-) Ég vil taka það skýrt fram að þau þurftu nánast enga aðstoð.
Posted by: Hilmar | október 07, 2003 at 12:02 AM