Fjarnemar: Fram til mánaðarmóta einbeitum við okkur að því að færa dagbók í Blogger. Vefur KHÍ lá niðri um tíma í síðustu viku vegna vírusmála og ekki var hægt að komast í vefpóst hjá KHÍ. Ennþá er ekki allt komið í lag. Það veldur nokkrum töfum og hef ég ekki komist í að senda ykkur póst fyrr en núna.
Staðnemar: Námskeiðið byrjar seinna hjá staðnemum og skilafrestur er til föstudagins 12. september á þessu fyrsta verkefni.
Skoðið leiðbeiningar með bloggi
Allir eiga að halda blogg eða leiðarbók á netinu og skrifa í hana amk þrisvar sinnum í viku. Má gjarnan vera oftar. Við byrjuðum á þessum leiðarbókum í staðbundnu lotunni og allir eiga nú að hafa blogg með mynd af sér. Ég vil biðja ykkur að halda áfram að skrifa í leiðarbók (blogger) sem við byrjuðum á í staðbundnu lotunni í KHÍ og skrifa alla vegar þrjár stuttar hugleiðingar/pistla (með tengingum) um eftirfarandi:
Kynning á ykkur
Þarf bara að vera nokkrar línur í blogger
Samskiptakerfi - spjallkerfi
Örstuttur samanburður á samskiptakerfum á vefnum t.d. malefnin.com, einkamal.is, friendster.com, WCT. Hvernig hefur fólk samskipti á Internetinu? Þetta er æfing í að tengja í vefi.
Vefir fyrir kennara
Skrifa stutta færslu um einhverja góða vefi fyrir nám og kennslu. Skoða vefi fyrir kennara og æfa sig að tengja í þá í bloggfærslum. Þessir vefir geta t.d. verið:
http://www.utn.is
http://www.kennari.is
http://www.menntagatt.is
Tölvuleikir á Netinu
Æfa sig í að vísa í netleiki. Skrifa einhvern texta með um hvort þú mælir með þessum leikjavef og hvernig þér fannst hann.
Recent Comments