« Tölvuormar og tölvuvírusar | Main | Blogggreinar í dagblöðum »

ágúst 25, 2003

Comments

Sara Dögg

sæl salvör!
eins og þú sást þá var ég að gera bloggið mitt voðalega fínt í gær og þegar ég ætlaði að fara að vinna í því núna er kassinn í template bara alveg tómur??? skil ekki alveg........
allt bara farið en samt er síðan í lagi á netinu...
áttu eitthvað ráð við þessu?
kv.
sara

Gréta Matt

Sæl verið þið.
BLOGG síðan liggur niðri. Allavega kemst ég ekki inná hana. Eru fleiri í þessum sporum? Nú er ég hrædd um að það sem ég var búin að skrifa í dag sé farið fyrir lítið ; (
Kveðja,
Gréta

Hulda Björk

hæhæ .. ég er búin að vera að vinna eitthvað í blogginu mínu og núna er allt í einu engin mynd inni... inni í template er alveg eins og allt sé í lagi og rétt slóð í myndina?? skil ekkert í þessu
Dettur þér eitthvað í hug hvað getur verið að??
Bless í bili Hulda

Rannveig

Hæ Gréta. Eftir að ég las þitt mail prófaði ég líka að fara á bloggið og þegar ég ætlaði að lesa það sem ég hafði skrifað var það allt með einhverjum undarlegum táknum og alveg óskiljanlegt. Vonandi að þetta komist fljótt í lag. Kveðja Rannveig

Marit

Hæ hæ.
Sat lengi við í dag yfir blogginu og er í sömu vandræðum og Rannveig. Allt í einu komu bara einhver torkennileg tákn fyrir íslensku stafina (ég held að það séu bara íslensku stafirnir. Ég finn enga leið til að laga þeta nema skrifa allt aftur.
Kveðja
Marit

Gréta

Hæ...aftur.
Það sem ég gerði fyrr í dag hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég er núna í sömu sporum og þið stelpur, para torkennileg tákn og ég reyti hár mitt og skegg (ef ég væri með skegg)Og botna ekki neitt í neinu!
HJÁLP!!!
Gréta

Salvör

Ég var að skoða bloggin hjá ykkur. Það virðast nokkrir hafa lent í að íslenskan kom ekki. Ég gat ekki séð neina skýringu, held helst að eitthvað hafi gerst hjá blogger. þetta virðist komið í lag núna.

Laufey

Halló öll sömul

Ákvað að prófa að senda ykkur skeyti á þessum vettvangi. Ég hef eins og fleiri hér glímt við þetta vandamál með að íslenskir stafir hverfi.

Gerði í gamni tilraunir og það var eins og þetta gerðist bara ef ég fór beint í post og publish en ekki í post fyrst og síðan post og publish. Hélt samt að það ætti ekki að skipta neinu máli.

En þá að aðalatriðinu. Á kennsluáætlun er talað um vefrallý og skiladag 1.sept. Eigum við sem sagt að skila því á morgun? Ég fékk vægt sjokk, því ég treysti á að það sem okkur hefði verið sett fyrir hér væri það sem ætti að einbeita sér að. Vona að það hafi verið rétt skilið hjá mér. Annars verð ég að fara í þetta í hvelli! Væri gott að heyra frá Salvöru.


Laufey

Halló aftur

Var búin að skrifa og skrifa einhverjar viðbætur um leikjavefi og fæ alltaf villu þegar ég fer í publish. Ég get ekki einu sinni sett inn nýja færslu. Snökt. Er eitthvað rugl í bloggernum eða er þetta staðbundið vandamál hjá mér :-)?

marit

Hæ þið

Ég get ekki séð að texti sé kominn í lag á blogger. Get samt skrifað og publishað núna án þess að allt breytist. Gamlar færslur eru samt enn ruglaðar. Eitthvað hlítur að vera að á blogg síðunni.

Kveðja
marit

Úlfhildur

Ég lenti líka í að það kom eitthvað rugl var sem betur fer búin að copyera textann fyrst. Prófaði síðan að segja post og publish sitt í hvoru lagi og þá var allt í lagi. Textinn var frekar langur hjá mér og sýnist mér það vera ástæðan því þetta var allt í lagi þegar ég var með styttri texta, þá koma ekkert rugl.
Bestu kveðjur Úlla

Salvör

það á ekki að skila fyrr en um miðjan sept. vefrallý, ákvað að breyta upphafl. áætlun vegna þess að það voru margir í tölvuvandræðum.

Jóhanna

Sæl öll
Ég lenti líka í þessu með íslensku stafina og allt í kollinum á mér fór eins, á hvolf! En ég ákvað að vinna bloggtextann fyrst í word og færa svo yfir, ég þurfti nefnilega að skrifa upp nánast allan textann aftur............
Kveðja
Jóhanna

Jóhanna

Sæl aftur

Ég varð fyrir þessu aftur þegar ég var að setja inn greinagerð um leiki á netinu. Þegar ég "postaði" þetta kom þetta út á ruglnesku. Sem betur fer gerði ég þetta fyrst í word en þetta er ekki það skemmtilegasta samt. Er ekki eitthvað sem ég er að gera vitlaust eða hvað??

elinthorarensen

Já þetta yndislega mál okkar, það tekur upp á því að breyta sér að eigin geðþótta.Það er nú gott að vita að maður er ekki einn um þetta. Hjá mér breyttist ekki það sem ég vildi leiðrétta en það sem ég gerði í dag var í lagi. Þegar maður flettir svo upp í eldra blogg þá er allt í einu allt í lagi. Skil ekkert í þessu KV.E.T.

Salvör

Hafið ekki áhyggjur af þessu með íslensku stafina, veit ekki hvað gerðist en svona getur þetta verið...
sumir lentu í að fá eitthvað skrýtið.

Steinunn

Fékk talsvert sjokk þegar ég opnaði tölvupóstinn minn núna 1.sept og komst að því að við eigum að vera búinn með 3 verkefni á blogginu. því miður vissi ég ekki af þessum 3 verkefnum en hef samt skrifaði í dagbókina aðeins en tölvumálin hafa ekki verið sem best hjá mér en allt er komið í lag núna og ég reyni að kippa þessu í liðinn þótt 1.sept sé kominn.

Hulda Björk

hæ Salvör, sá að þú varst búin að kíkja inn á bloggið mitt og skrifa inn á spjallið að það væri hægt að hafa íslenska stafi... mér var búið að detta það í hug, en veit ekkert hvernig ég á að gera það??? Heldurðu að þú getir hjálpað mér eitthvað?? Bæ í bili Hulda

Úlfhildur

Hæ Salvör
Ég var að setja Tag board inn á bloggið hjá mér. Finnst bara lítið varið í það því það virkar ekki með íslenskum stöfum. Er hægt að laga það og þá veistu hvernig.
Bestu kveðjur Úlfhildur

Úlfhildur

Komdu sæl aftur,
Annað sem mér datt í hug, get ég sett teljara inn á síðuna svona til að fylgjast með hvort það séu einhverjir að lesa það sem ég skrifa. Hvar get ég þá nálgast teljarann?
Kveðja ÚHG

Úlfhildur

Ég fann auðvitað teljarann bara sjálf með því að leyta á Google. Svona getur maður verið fljótfær.

Salvör

Úlfhildur, ókeypis teljari er hjá www.teljari.is og víðar á vefnum.

Eggert Björgvinsson

Hæ Salvör, bloggsíðan mín virkar engan veginn. Ég var að velta því fyrir mér hvort að þú gætir sett síðuna mína upp því ég virðist ekki ná því almennilega.

Salvör

Eggert, skoðaði bloggsíðuna. Hún virkar fínt hjá mér. Ég prófaði að setja inn texta.

The comments to this entry are closed.